-
25.03.2007 14:40:05 / andrea

The Insider.

 

Breaking news of Anna Nicole story..

 

Who is the father of Annas child? Is it the young man, the lawyer or the bodyguard? Or Johanne?

Dúmmdúmmdúmm.

HATA þetta. Alltaf þegar maður er að horfa á The Insider, sem ég geri þónokkuð oft, þá er alltaf BREAKING NEWS of Anna Nicole story.  Það einfaldlega klikkar ekki.  OG btw. hvað kemur okkur þetta við? Auminga stelpan hennar sem ég á að vita hvað heitir eftir allt þetta insidergláp.  Þessi þáttur heilaþvær fólk, fólk eins og mig, fólk eins og mig og Jóhönnu. Oh, þoli ekki þegar ég á að vita hvað eitthvað er en gleymi því .. maaaaa. 

Þegar Anna Nicole dó, þá leið mér eins og ég hafi þekkt hana, varð hissa og svo fór maður að hugsa fyrir hvað er hún eigilega fræg? Og þá fyrir að vera einhver svaka bomba , bæði kynbomba og feit BOOMBA og svo fyrir að vera gift an oldie í hjólastól með súrefniskút í hægri.  That's the spirit.

Aaaaanywaaays.  Er ekki búin að blogga í áraraðir.  Désolé! Voðalega lítið að frétta, annað en MR vann verzló í GettuBetur og páskarnir eru að koma :) Kvíði fyrri föstudeginum langa, ekkert lítið niðurdrepandi dagur, þó svo að stundum mætti halda að sunndagar væru föstudagurinn langi,  Sunnudagar.. þegar maður vaknar á sunnudögum vitandi það að maður á eftir að læra, skóli á morgun, heil skólavika eftir, fjögur eða fimm próf i næstu viku þá langar mig til að sofna.  Má nú ekki gleyma að það er líka rigning. Klikkar ekki. Alltaf rigning á sunnudögum. Sunnudagar = létt þunglyndi.  Æj, er farin að pæjast og horfa á Shrek 2.  Hún er á bíórásinni :)

Bæ mjásar :)
 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 12:21:41 / rebekka

Andrea.

Hvar er bloggið:O

Á morgun segir sá lati? þú ert lötust.

Farðu að blogga:)

Merkilegt nokk hérna í lokin

Maddy fyrsta svarta Disney-prinsessan

Prinsessur eru einkennandi í teiknimyndum frá Disney-fabrikkunni og svo virðist sem ekkert lát sér þar á. Á dögunum var kynnt til sögunnar nýjasta prinsessan, en sú ber heitið Maddy og er fyrsta svarta aðalpersóna Disney-teiknimyndanna.

og.

Kötturinn Agui getur sagt nafnið sitt, og gerir það þegar hann verður hræddur, segir eigandi kattarins, sem býr í Peking.

HAHa, tilgangslaust. En andrea farðu að blogga!

Rebekka.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 23:28:19 / andrea

Afsakið hlé?

 

Heil og sæl, kæru gestir :)  Orðið freeeekar langt síðan seinast.  Búin að vera frekar mikið upptekin síðustu daga og vikur.. afsakið þið. 

Lofa fersku bloggi á morgun :)

 ... á morgun , segir sá lati!

-Andrea  


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 23:11:03 / rebekka

Sjóvarpsstjarna.

Það er örugglega rosagaman að vera Stjarna, Fyndið að þegar við sjáum stjörnu á himnum þá erum við kannski að sja ljósið sem var á stjörnuni fyrir 100 árum. Merkilegt nokk. En já tilgangurinn með titlinum á færsluni er að andrea er sjónvarpsstjarna. Hún var í sjálfstæðufólki í heilar 10 sek. HAHA. stolt. Hún var líka í skærgræna vestinu sínu svo að allir myndu sjá hana. Og nú verður hún örugglega fræg innan skamms. Hún byrjar allavega vel.  Kannski verður andrea næsta Sirry? hver veit:O.

Bara svipur með þeim. heee.

Já í dag/kvöld fórum við Andrea saman að borða á Kfc. Rosagott við hlógumoghlógum greiið fólkið sem ætlaði að fara á kentökkí og njóta sín í rólegheitunum að snæða ljúfenga kjúkklingabringu. Eða bara Twister .Ég fæ mér alltaf bita, legg.

Uppbygging á síðunni andrea? þú ert alveg að standa þig;) love the new look hehahaha, og fastur svipur!:D hahahah

Jæja bara láta heyra frá mér takk í bili

hækjan.


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 16:14:28 / andrea

Letídýr.

Halló.

Bílpróf.. eins og staðan er í dag finnst mér allir í kringum mig vera að fá bílprófið sitt nema ég.. aumingja ég!  Mitt fæ ég í ágústmánuði ef allt gengur eins og ég vil að það gangi.  Því miður er ég frekar löt í þessum málum en stefni á það að byrja fljótlega, betra seint en aldrei, ekki satt? Því miður þá hafa mjög fáir sterka trú á mér varðandi bílprófið , oftar en einu sinni hef ég fengið að heyra " Pant ekki fara með þér í bíl, átt eftir að hlægja eða tala og keyra á" og "þú átt örugglega ekki eftir að ná niður á bremsuna"  og þetta eiga að kalla bestu vinir manns sem segja svona lagað.  Anyways.. ég tala mikið, ( þó svo að mér finnist ég ekki tala það mikið), hlæ mikið af óþarfa hlutum, og ég á það mikið til að gleyma mér í svolítinn tíma, lýsi þessu frekar sem ég detti út á ..tjaa skal segja á óheppilegum tímum.  Semsagt af ónefndum vini mínum hóst Jóhanna Sigríður hóst  þá mun ég lenda í umferðaróhappi innan átta mánuða.  7,9,13 krakkar.

Sýki.. fatarsýki, matarsýki,nammisýki = allt sem ég þjáðist af árið 2006.  Ótrúlegt en satt, ég sem er mesti nammigrís sem þú getur fundið fyrir utan Jóhönnu þá er ég búin að borða frekar lítið nammi, þannig af mínu mati hef ég læknast af nammisýki. 


Matarsýkin er ennþá að í líkamanum, stefni á að bæta mataræðið, undarlegt en satt þá er ég byrjuð að borða smá hollustumat þó svo að ég lifi ekkert Ágústu Johsonfæðu, ef ég segði það þá væri ég svo sannarlega að ljúga feitast. 

Aftur á  móti hefur fatarsýkin sem að mínu mati hrjáir hverjar einustu stelpu sem ég þekki, ekki farið og langt frá því að fara.  Hvaða stelpa elskar ekki að kaupa sér föt?  Þegar nokkar stelpurnar í bekknum mínum upplýstu að þær þoldu ekki að fara að versla föt missti ég andlitið.. mér til mikillar skemmtunar eru þó mjög margar fatafríkur í bekknum..  Sem ég dái.  Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að kaupa mér föt ..  Stefni þó á að laga þetta eftir páskana, þ.e.a.s þegar ég kem úr verslunarferðinni með hele familien ( ég skástrik mamma).

 

Ritstíflan hefur læknast og við stefnum á að laga síðuna innan skamms.

Farvel mine venner.

   


» 13 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 22:00:23 / rebekka

2007

Gleðilegt Nýtt Ár.

takk fyrir þau liðnu.

dyr-


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 18:36:24 / andrea

Gúddai!

Góðan daginn.

Langt síðan ég bloggaði, Oó. En var í prófum þannig... :) Allavega þá  tekur þetta jólastúss mann á taugum, ég er alltaf svo stressuð og kaupa jólagjafirnar handa þessu liði, ekkert nema vanþakklæti í þessu. Hehe , neinei.

Frábært, hvað þátturinn þarna The Player er sá glataðasti sem ég hef horft á.  Án gríns, var byrjuð að tárast úr leiðindum.  Svo hugsaði ég með mér Ísland hlýtur að fara gera íslenska útgáfu af þessum þætti,  þ
á fyrst myndi ég skammast min fyrir að vera Íslendingur þó svo að ég hafi fengið vægan skammt af kjánatilfinningu með Íslenska piparsveininum.  Annað sem ég man eftir var þegar einhvern ,,snillingur'' lét þýða Malcom in the middle á íslensku, man að fjölskyldan sátum fyrir framan sjónvarpið í hláturstkasti þegar Reese, bróður hans hét allt í einu Ragnar eða eitthvað álíka..Skömm... meina það.

Alltaf á þessum tíma fæ ég að heyra það hvað ég var mikið kvikindi á mínum yngri árum, meina krakkar í dag.. hefðu ekki geta látið detta sér í hug að framkvæma þessa hluti sem ég gerði, ég vil meina það að ég hafi verið undrabarn.  Meina ;

  Að láta sér detta í hug að vakna á nóttunni og kíkja í skóinn hans Bjarka hvort hann hafi fengið flottara en ég og ef mig líkaði hans dót, þá skipti ég.  Man eitt atvik þegar ég fékk kartöflu og Bjarki nammi.  Vaknaði ég og skipti , mamma vaknaði við að Bjarki kom upp í rúm grenjandi ,,mamma, ég var ekkert óþekkur í gær'', mamma kom fram og sá litlu stelpuna sína alla í súkkulaði , voðasátt.  Ekkert nema snilli.. að mínu mati.

Annað sem ég gerði var að ég opnaði dagatölin  hjá Bjarka og Danna og át úr þeirra eeen...skildi smá bút í nr.24. Týmdi svo ekki að éta mitt, sparsemi !

Orðin frekar þreytt...... spurning um að leggja sig til að geta horft á c.s.i lokaþátt í kvöld. Veit, ég er nörd.

Gleðileg jól.

                             Verum nú glöð með það sem við höfum.  Held við ættum að hugsa aðeins um þau meðan við gúffum í okkur jólakjötið.. svona án gríns :)

Andrea elsker dig!


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 23:26:36 / rebekka

Nú hafa þegar 29 látið lífið í 26 banaslysum í umferðinni...

Já ákvað að blogga smá, og vá var að lesa frétta að það var banaslys i dag. Vá mer finnst eins og það séu búin að vera bara svo mörg a stuttu millibili, og ef ekki það þá er það drukkinökumaður tekin eða bara langt yfir hámarkshraða. Og þegar 5 ara stelpa eða held hún var það gömul lést um dagin, okei skiptir ekki máli hvað það er gamalt, en samt þetta varð maður svoldið reiðari eða þið vitið hvað eg meina. Þetta er hræðilegt.

Jæja 4/7, þetta er að koma stær a morgun er buin að læra i allan dag og lika í gær. Váá, samt er þetta eins og ég kunni ekki neitt, þetta kemu i ljós á morgun, vonum það besta:)

Já, Ég er alltaf að komast í meira og meira jólaskap:)

Já er alveg að sofna var bara svo langt síðan við blogguðum er nátturlega alltaf að læra erum i prófum, heee:)

Damien rice-9 crimes, rosa gott lag:)

farin að sofa, gn. gangi ykkur vel á morgun sem eruð að fara í próf, þettta væri nú skemmtilegri vekjaraklukka en mina:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 22:03:07 / andrea

Oj, hermikráka

1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?
2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
4.Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
5.Hvaða lag minnir þig á mig?
6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
7.Hvað giskarðu á að ég verði gamall þegar ég trúlofa mig?
8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
9.Hvernig stráka fíla ég?
10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
11.Hvað er mest einkennandi við mig?
12.Hvaða búðir elska ég að fara í?
13.Lokaorð til mín?

Ouch.

Andrea


» 19 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 16:15:19 / rebekka

Pæjublogg

hvernig setur maðurmyndbönd a netið? haha.

Já þið eigið eftir að fá að sjá þetta allt þegar ég kemst að því.

Þetta er svo fyndið, ég og andrea að syngja og segja sögur. Við vorum að horfa a þetta um daginn váá. Andrea verðum að setja þetta inn.

Annars er bara að koma helgi. Vá ég hlakka til þegar skólinn er búinn a morgun. Þá tekur helgarfríið við, en maður verður vist að læra eitthvað því prófin eru að byrja. Stress? já verð að viðurkenna það. Ég ætlaði svo bara setja nokkrar pæjumyndir af mer og andreu síðan langt síðan. ekkert blogg neitt.

Til andreu Frá rebekku:) hahaha

Flottar?
Pæjur.
Besta
svöl?

p.s andrea hvað viltu í jólagjöf?


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 18:28:16 / andrea

Andrea elsker mig.

Bleeeeeessar.

Það er aldeilis að snjórinn er kominn.  Alltaf þegar snjórinn kemur og það verður svona dimmt , þá nennir maður engu.  Nenni varla að standa upp til að fara á klósettið, hámark letinnar.  Anyyyyyhooow, þá er ég búin að vera í hláturskasti í allan dag.  Dagurinn byrjaði reyndar illa, þar sem ég var engan veginn að ná að vakna,  kom í skólann með feita skeifu í smettinu, breyttist þó strax, áður en ég vissi var ég farin að hlægja og hlægja. Ótrúlegt, hvað maður getur alltaf hlegið af sjálfum sér. Allir sem þekkja mig vita að ég hlæ alltaf að bröndurunum mínum, þó ENGUM finnist þeir fyndnir.  Lúða ég :)

 

Tjaa.. kom að ömmu í dag vera að gera slátur.  Þetta var eins og kúkur í plastpoka, viðbjóður.  Mig lystir ekkert í kvöldmat eftir þessa sjón.  Hef alltaf fundist slátur ógeð, og borða það alls ekki en þetta gerði það að verkum að ég mun ekki einu sinni gefa krökkunum mínum þetta, frekar færi ég út í tunnu hjá neigbour og æti þar..sælkeri.

Núna hef ég bloggað og stefni á feeeeeeeeitt chill i aften.

Later skater. 

Andrea ..

elsker dig.

 

 

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 21:55:16 / rebekka

Lífið er yndislegt ég geri það sem ég vil. skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?

haha8)

Hola, buenos dias:)

Já að fá lög á heilan? not good. Ég fæ alltaf þessi leiðinlegu lög. T.d. What's your name what's your number i would like to get to knowyou...(8) lovely.og lika lífið er yndisleg ég geri það sem eg vil.:) haha gaman ha? nei. En þegar maður fær skemmtileg lög a heilan þá er kátt í höllinni. H'un þyrnirós svaf heila öld, heila öld. nei rebekka hlífðu sjálfri þér.  Jæja nú er ég komin útfyrir umræðuefnið. Svo annað i sambandi við lög að vita um lag en vita það samt ekki. Alveg óþolandi þu veist lagið samt ekki taxtan ne lagið. hver hefur ekki lent í þvi?

Já þvílikar pælingar. langaði  bara deila þessu með ykkur.

hahah var að horfa a tekin. Þetta er svo fyndið. hverjum dettur i hug að klæða sig ur til að fara i lúxusalinn i smaralind. Sá bara þetta með Sveppa.

 

Ég þoli ekki þegar það er spurt mig hvað viltu að borða? og eg svara: alveg sama. Þá kemur ávalt nei það er ekki til Ég ætla stofna sjoppu (grill) sem heitir Alveg sama. Þá væru allavega viðskiptin gríðaleg.

Jólin? andrea kom með jólablogg seinast. Ég ætla að passa mig þetta árið og byrja ekki of snemma að hlusta a jólalög. Þá fæ eg bara ogeð af þeim.

Kuldin. Ohh það a að vera kalt a morgun+rok. gleidi. sem betur fer er eg i innileikfimi:) höhö:D

en hei rebgis er out. haha.

Adios Amigos.


» 12 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 17:24:08 / andrea

Eitt lítið jólalag.

Daaaginn.

Þó undarlegt megi virðast þá er ég byrjuð að hlusta á jólalög, fyrir nokkrum dögum sat ég ég í strætó og furðaði mig á fólki sem væri byrjað að skreyta og hlusta á jóalög.  Viti menn, ég er komin í jólagírinn.  Hlakka til þegar prófin eru búin og ég klára að kaupa jólagjafirnar, ég veit ekkert hvað ég á að gefa, enda líklegast á Þorláksmessu að  klára, er orðin vön því. 

Held að ég sé að ganga af göflunum, sat hér og lærði í efnafr. áðan og Róbert var að senda mér jólalög og ég sat og hlustaði á Ipodinn og svo var ég orðin nett pirruð að ég heyrði ekkert jólalögin, og ég byrjaði að bölva tölvunni, nei þá fattaði ég að ég væriað hlusta á Ipodinn en ekki Itunesið, pirrandi.  Svo rétt í þessu var ég fara senda sms af síminn.is og búin að senda tvö og nett pirruð á því að dýrið svaraði ekki , leit svo á símann minn þá hafði ég verið búin að senda í minn síma.  Svona getur maður verið nettklikkaður... á sunnudögum.

Elska hvað jólamyndir eru sætar og skemmtilegar.  Jólaósk Önnu Bellu er rosalega sæt, The Grinch er sígild.  Jólin koma varla ef maður horfir ekki á þessar tvær. Loveit

Aftur á móti þá var þetta fínasta helgi, ekkert undan henni að kvarta.  Kíkti á þetta leikrit, Öskubusku.  Fór í pottinn með Jógu, Selmu og Svölu Dís, kósý.

Heyrið þið,

Venlig hilsen.

Sætust.

Andrea.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 19:14:08 / rebekka

krullur:)

Þetta blogg byrjar ekki vel ég þurfti að byrja fimm sinum uppá nýtt. Klaufaskapur í mér.

Ég var að skoða þessa síðu og ég sá nýtt útlit og eg kann vel við það, andrea hefur örugglega verið að breyta:) Gaman.

Ég var líka að skoða myndirnar hér til hliðar. Ogeð. Krullutoppurinn jáhá. Maður var alveg með hárið í lagi

hvað finnst ykkur? ekki smart?

Sem betur fer eignaðist ég sléttujarn hahaha:)

Andrea þokkalega svöl.

Krullan kveður.


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 20:06:39 / andrea

Eniga meniga.

Daginn, kvöldið?

Í dag sló ég svo sannarlega persónulegt met.  Horfði á sex myndir. Bíómyndir. Veikindi = leiðindi.  Merkilegt, þegar maður er heilbrigður þá óskar maður þess að vera lasin, en svo þegar maður verður loksins lasin þá óskar maður þess að vera heilbrigður.  Ótrúlegt.  Horfði á myndir sem ég hafði ekki lengi séð ; Love and basketball og fleiri í þeim gírnum.  Love and Basketball er best, þó að ég þoooooooli ekki atriðið þegar þau eru að ríða, lagið er svo asnalegt!  Ég get svo sannarlega ekki ýtt á takkann sem stillir á næsta atriði, aldeilis ekki því gaurinn er damn fine, þannig ég læt mér það duga að ýta á MUTE.  Yfir þessu get ég kvartað óendanlega. Fleiri myndir sem ég horfði á voru þessar týpísku Andreumyndir, þ.e.a.s. stelpu/prinsessu/gelgjumyndir.  Þær eru einfaldlega bestar.

Heitur.

Var að gramsa í allan dag , fann sniðugar myndir ;

Jóhanna og Ósk.

Skondin þessi :)

Uppáhaldið ;*

Hvernig er þetta hægt? 8|

Ættbálkurinn hefur talað,

Andrea.

Megi mér batna.


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14